67 Racing hvetur alla til að
skrá sig í R.R AÍH
www.road-race.net

Þrátt fyrir talsverðan fjölda af meðlimum í AÍH hafa mjög fáir nýtt sér þann ávinning sem getur fylgt aðildinni. Meðal annars býðst meðlimum AÍH að fá dælulykil og/eða viðskiptakort frá N1 með talsverðum afslætti af meðal annars eldsneyti. Sjálfur er ég með dælulykil fastan við lykilinn af hjólinu og tek iðulega bensín hjá N1 við Smáralind á leiðinni á æfingu uppá AÍH braut. Þar kostar lítrinn 187,7 kr en ég sé á dælunni strax að ég borga bara 180,7 kr/ltr. Það munar um minna. Einnig getur maður greitt með lyklinum inná bensínstöðvunum þegar maður fær sér kaffibolla og þarf því ekki að grafa veskið uppúr mittistöskunni.

Svo lét ég smyrja Toyotuna gömlu á smurstöð N1 í Ártúnsbrekkunni og fékk 15-20% afslátt af öllu.´

Eina sem meðlimir AÍH þurfa að gera er að fylla út smá umsókn og senda eða hafa samband við þjónustuver N1 að því gefnu að þeir eru komnir með félagsskírteini AÍH (sem er Safnkort N1).

Nánari upplýsingar hérna:
http://www.road-race.net/Xodus.aspx?id=137&MainCatID=38


_____________
Road Race fréttir.


Nú er búið að malbika R.C brautina í Kapelluhrauni. Æfingar hafa legið niðri en stefnt er að því að hefja æfingar
strax í næstu viku eða þegar framkvæmdum lýkur samkvæmt forsvarsmönnum R.R AÍH.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum lítur nýja malbikið
stórglæsilega út og mun þetta koma til með að gera brautina mun skemmtilegri en áður hefur verið.
Nú loks þarf ekki að keyra í gegnum pittsvæðið og er pitturinn því alveg laus umferð og stækkar til muna.
Brautin býður nú upp á meiri hraða og meira flæði sem ætti að nýtast götuhjólunum einstaklega vel.














_________________________________________________________


67 Racing æfir Road Race hjá RR AÍH
www.road-race.net
www.aihsport.is