Ný stjórn Hjá KK
Kvartmíluklúbbnum stýrir stjórn 7 manna og 2ja varamanna.
Þeir eru:
- Ingólfur Arnarson, formaður
- Guðmundur Þór Jóhannsson, varaformaður
- Friðrik Daníelsson, ritari Fridrikdan(hjá)simnet.is s:693-9115
- Jón Þór Bjarnason, gjaldkeri, nonni(hjá)kvartmila.is, s:899-3819
- Jón Bjarni Jónsson, upplýsingafulltrúi flappinn(hjá)simnet.is, s:847-3217
- Baldur Gíslason, meðstjórnandi
- Rúdólf Jóhannsson, meðstjórnandi
___________________________________________
67 Racing hvetur alla til að kynna sér
Kvartmíluklúbbinn.

_________________
Hér er keppnisdagatal KK fyrir 2010
15 maí - Opnunarmót
29 maí - 1 umferð íslandsmótsins
12 júní - 2 umferð íslandsmótsins
3 júlí - 3 umferð íslandsmótsins
17 júlí - King of the Street
7 ágúst - 4 umferð íslandsmótsins
21 ágúst - 1/8 míla
4 September - Lokamót
Önnur Dagskrá
5 Júní - MC dagur
26 Júní - Import Dagur

Stór Sigur hjá 67 Racing í 1/8 mílu.
Enn einn 67 Racing sigurinn í hús.
Í þetta skipti var það 1/8 míla. Guðjón Geitungur sigraði tvo Íslandsmeistara í
800cc flokki. Jón Lobo varð svo annar.
Í minni flokknum 799cc sigraði Haffman á hinni alræmdu Rottu.
Hér má sjá strákana taka á móti verðlaununum
takið sérstaklega eftir því að Geitungurinn hefur
stækkað eitthvað í sumar. Hann er allavega stærstur af þessum
þrem á verðlaunapalli.
Þess má geta að þeir hafa allir ásamt
X-Ray fengið nýjan samning við 67 Racing Team fyrir
Næsta ár.
Hér má sjá Sigurvegarana

_______________________________________
15.08.09
Frábær árangur 67 Racing.
67 Racing eignaðist sína fyrstu íslandsmeistara árið 2009.
Geitungurinn sigraði 1000+ og nýjasti meðlimur 67 racing
Reynir Reynisson sigraði 1000 stock.
67 Racing hefur því sigrað alla þá flokka og mót
sem liðið hefur tekið þátt í og átt öll silfur.

________________________
Kvartmíla
11.07.09
Hörku keppni fór fram í dag. Veðrið var frábært lyktin ömurleg en góðaskapið til staðar. Skemmst er frá því að segja
að 67 Racing sigraði alla flokka sem liðið var skráð í og alla silfurpeningana.
Gaui Geitungur mætti einn í sinn flokk og vann hann því sjálfkrafa. Hann færði sig því upp um flokk og keppti við Gústa í
+1350cc. Gaui sigraði og setti Íslandsmet í flokknum 10.006
Edda var ein skráð í sinn flokk og sigraði hann því sjálfkrafa.
Eins og venjulega var keppnin hörðust í 1000cc stok.
Nonni setti besta tíma í tímatökum, Bjössi næst besta, Reynir þriðja besta. Allir þessir tímar voru á bilinu 10.333 til 10.450
Nonni sigraði Reyni í undanúrslitum og þurfti oddaspyrnu til að fá úrslit.
Bjössi og Haffi mættust í hinum undanurslitunum.
Þar þurfti einnig oddaspyrnu til að fá úrslit. Haffi sigraði í oddaspyrnunni eftir að Bjössi þjófstartaði.
Nonni og Haffi mættust því i úrslitum og sigraði Nonni það nokkuð örugglega þrátt fyrir að Haffi hafi bætt tímana
sína talsvert.
Því er keppnin orðin æsispennandi og allir nokkuð jafnir að stigum til Íslandsmeistara.
Úrslitin ráðast því í lokakeppninni og verður öllu tjaldað.
10 stig fyrir mætingu..
5 stig fyrir að bæta íslandsmet
16 stig fyrir besta tíma í tímatökum
15 stig fyrir næst besta o.s.frv..
90 stig fyrir fyrsta sæti
70 stig fyrir 2 sæti
50 stig fyrir 3-4 sæti
30 stig fyrir 5-8 sæti
Reynir
10-10-15-16-90-50
Samtals
191 stig
Nonni
10-10-16-14-90-50
Samtals
190 stig
Bjössi
10-10-15-14-70-50
Samtals
169 stig
Haffi
10-10-13-13-70-50
Samtals
166 stig

Verðlaunaafhendig. Hafsteinn Eyland (Haffman) - Jón Kr Jacobsen (Nonni Lobo)

Guðjón Þór Þórarinsson (Gaui Geitungur)

Nonni Lobo Vs Reynir Reynisson

Haffman vs Bjössi Sýra

Gústi vs Gaui Geitungur

Edda Vs Árni Páll

Bjössi Sýra

Gaui Geitungur

Gústi

Haffman

X-Ray (Reynir Reynisson)
.jpg)
Nonni Lobo
Myndirnat tók Gunnar Örn
og GuðniR33
Fleiri myndir frá Jóni Ásgeiri og Jóni Erni eru væntanlegar.
___________________________________________________
Kvartmíla
13.06.08
Nú er fyrsta keppni sumarsins sem gildir til Íslandsmeistara búin. Til að gera langa sögu stutta þá náði 67 racing frábærum árangri. Guðjón Þór betur þekktur sem Gaui Geitungur sigraði örugglega í 1000cc+ á Kawasaki Zx12r og Gústi sigraði 1350+ á Kawasaki Zx14r.
Mesti hasarinn var í 1000cc stok eða I flokk. Hófst baráttan strax í tímatökum en aðeins munaði 0,35sec á
besta og lakasta tíma. Haffi á Kawasaki Zx10r og Nonni Lobo á Yamaha R1 lentu í 3-4 sæti og Bjössi Sýra á Suzuki GSX-R í 2.sæti. Sigurvegari var því Reynir Reynirsson á Yamaha R1 en heimildir herma að hann muni á næstu dögum skrifa undir samning við 67 Racing.
Næsta keppni fer fram laugardaginn 11 Júlí.
Verið er að vinna í að setja inn video frá keppninni.