67 racing var stofnað af fimm harðkjarna einstaklingum með brennandi áhuga á mótorsporti. Þorgeiri Ólasyni, Hafsteini Eyland, Jóni Ásgeiri, Jóni Erni og Hans Ragnari. Innanborðs eru þaulvanur mannskapur á öllum sviðum svo sem auglýsingagerð, markaðssetningu, hönnun og að sjálfsögðu akstri og viðhaldi vélhjóla.
67 racing er metnaðarfullt keppnislið í mótorhjólasporti og samanstendur af einstaklingum sem eru með einbeittan áhuga á þátttöku í keppnum hér á landi og erlendis.
Team 67 snýst ekki eingöngu um sigur, 67racing team snýst um að byggja upp liðsheild sem skilar jákvæðum áhrifum út í mótorsport. Team 67 snýst einnig um að sýna gott fordæmi og vera uppbyggjandi í því sem liðið tekur sér fyrir hendur.
67 racing hefur sett sér það markmið að hafa mjög gaman af því sem liðið tekur sér fyrir hendur. Verkefni 67 racing er að sjá til þess að ökumenn liðsins geti einbeitt sér að keppnishaldi og verið þar í fremstu víglínu án þess að hafa áhyggjur af því hvort eitthvað sé að hindra þátttöku í keppnum.
67 racing vill vera virkur þátttakandi í Íslensku mótorsporti og stuðla að uppbyggingu á þeim sviðum sem snúa að mótorhjólum með þátttöku sinni.
Frá því að liðið var stofnað hefur það vaxið og dafnað. Í hópinn hafa bæst ökumenn, pittmenn, hönnuður og hjálpasveinar. 67 racing er með mikla reynslu af þátttöku og keppnum í mótorhjólasporti hér á landi undanfarin ár í motocross, enduro, götuhjólakappakstri, íscrossi, kvartmílu, sandspyrnu og fleiru.
Ef eitt orð til að lýsa keppnisliði 67 racing, þá væri það „brennandi áhugi“ 67 racing er „spútnic“ keppnislið og það skiptir ekki máli í hvaða keppnisgrein við tökum þátt – bara að það séu mótorhjól í myndinni.
Jón Ásgeir - Stofnandi, Framkvæmdarstjóri, Ljósmyndari, Video hönnun
Hans Ragnar Þór - Stofnandi, Fjármálastjóri
Jón Örn Þorsteinsson - Stofnandi, Hönnuður og graphic, Crew member
Ólafur þór Ólason - Erlend samskipti, Crew member
Ingi Þór Ólafsson - Þjálfari Enduro, Íscross , Mechanic, Crew member
Bjarni Einarsson - Mechanic, Crew member
Jón Kristján Jacobsen - Ökumaður, Kvartmíla Íslandsmeistari 2008 , Sandspyrna 2.sæt, Motocross, Enduro, Road Race