Velkomin á heimasíðu /
Welcome to

Bóklegt bifhjólanámskeið 2010!
Bóklegt bifhjólanámskeið verður haldið dagana 11. og 13. maí, 2010. Námskeiðið verður haldið í Álftamýrarskóla og hefst kl. 17:30 báða dagana. Nauðsynlegt er að hafa samband við Sigurð til að skrá sig á námskeiðið en fjöldi þátttakenda er takmarkaður á hverju námskeiði. Verð kr. 18.000,- og er þá kennslubókin innifalin í verðinu en án bókar er námskeiðsgjald kr. 16.000,-
ATH: Hér er um vandað námskeið að ræða og ánægja þátttakenda er okkar besta auglýsing! Kennarar á námskeiðinu eru hlaðnir af þekkingu og fróðleik og starfa eingöngu við ökukennslu. Námskeiðið er ætlað þeim sem hyggjast verða sér út um A eða M réttindi.
Til að skrá sig á námskeiðið eru þrjár leiðir:
Sendið tölvupóst á siggi@17.is
Hringið í síma 822 4166
Notið “hafa samband” flipann hér á síðunni – efst til hægri

_________________________
1. maí – Látum í okkur heyrast !
Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna.
Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur verður lokaður umferð á meðan) Keyrslan sjálf leggur af stað 11:30 niður Bankastræti og þaðan um Vonarstræti milli alþingis og ráðhúss Reykjavíkur, þar sem ætlunin er að láta aðeins heyrast í hjólunum og / eða flauta til að vekja athygli á málstað okkar. Leiðin liggur svo um Hringbraut, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut áður en keyrslan endar í Kauptúni gengt IKEA.
Aksturslýsing:
Fyrstu hjólin munu safnast saman við mót Bankastrætis og Laugavegar og þannig mynda röð eftir Laugaveginum. Búist er við á milli 600-1000 mótorhjólum svo að ef það fer að teygjast á hópnum er hægt að beina nokkrum hjólum upp á Skólavörðustíg. Mæting hjólanna er á milli 10:30 og 11:15 og mun keyrslan renna af stað stundvíslega kl 11:30. Ekið verður niður Bankastrætið og beygt til vinstri Lækjargötuna og svo til hægri inn Vonarstrætið. Ekin er Suðurgatan til vinstri og eftir henni að hringtorginu á Hringbraut sem verur lokað tímabundið. Hringbrautin er ekin að Bústaðavegi og Bústaðavegur að Kringlumýrarbraut. Kringlumýrarbraut er ekin að brúnni á Arnarneshæð þar sem ekið er til vinstri eftir Arnarnesvegi gegnum Garðabæ að nýju Reykjanesbrautinni. Loks er ekið eftir Reykjanesbrautinni að slaufunni við kauptún og endar keyrslan fyrir utan Kauptún
Árekstur mótorhjóls
Um kl 13:00 verður mótorhjól látið falla úr 10 metra hæð til að líkja eftir árekstri mótorhjóls við fastan hlut á um það bil 50 km/klst. Fallið ætti að sýna vel höggið við árekstur mótorhjóls.
Hjólið verður til sýnis eftir „áreksturinn“ á sýningunni Burnout 2010 og „droppið“ verður myndað á high speed video vélar að hætti Mythbusters.
Íslandsmeistaramótið í hjólafimi - vegleg verðlaun
Klukkan 14:00 verður haldið Íslandsmeistaramót í hjólafimi. Keppt verður í tímamældri þrautabraut, þar sem úrslitin ráðast á tíma og tækni, en refsistig verða gefin fyrir villur í brautinni. Keppt verður á 125cc hjólum sem verða á svæðinu til að tryggja jafnræði.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum
1. Verðlaun – 60.000 kr. Bensín úttekt frá Orkunni
2. Verðlaun – Hjálmur frá Suzuki umboðinu
3. Verðlaun – 20.000 kr. Gjafabréf frá IKEA
Stigahæsta kona – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Stigahæsti karl – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Hægt er að skrá sig til keppni með því að senda póst á 1831@sniglar.is eða á staðnum fyrir keppni. Skilyrði fyri þátttöku er að vera með mótorhjólapróf.
Sýning
<!-- endif-- ignored -->
Dagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsinns og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða. Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.
Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjólahluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður svo sem Hendeson 1918 gert upp af Grími Jónssini. Ýrr í Tatoo bike verður með Airbrush á sýningunni og sprautar og selur boli. Einnig verða hjól sem hafa verið skreytt með Airbrush á sýningunni. Kynning verður á Mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.
Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til Mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna á vegum umferðarnefndar samtakanna. Umferðarnefnd mun meðal annars dreifa límmiðum með áletruninni „Sérðu mótorhjól? – Líttu aftur!“ til að setja í bílrúður á sýningunni.
Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við Berg í 1831@sniglar.is
Biker Ball
Eftir að hafa hjólað frá okkur mest allt vit í hópkeyrslunni um daginn þá ætlum við að skemmta frá okkur því viti sem eftir er að kvöldi 1. maí á Players Kópavogi. Rokk/blues bandið Síðasti Séns leikur fyrir dönsum og djammi með DJ Mikkólf sér til halds og trausts.
Miðaverði hefur verið stillt í hóf og inn kostar litlar 1500 krónur íslenskar. Ekki þýðir að borga með erlendum gjaldeyri, við komust hvort eð er ekkert út til að eyða honum. Bandið samanstendur af þaulreyndum djammhundum sem marga fjöruna hafa sopið og DJ Mikkólfur hefur sopið þær tvær eða þrjár, enda fjöru áhuga maður mikill.
Rokk, Ról og Mótorhjól.
Kveðja,
Sniglar
sniglar@sniglar.is
www.sniglar.is
Dekkjatilboð frá JHM Sport
JHM býður takmarkað magna af:
Metzeler Roadtec Z6,
Metzeler Sporttec M3 og Pirelli Diablo Corsa í stærðum 190/50-17 og 120/70-17
Bjóðum þessi dekk með 20% afslætti til 10 April
.JHM Sport ehf Stórhöfða 35 110R,
Sími: 567-6116
www.jhmsport.is

_
Ískross – 3. umferð Íslandsmótsins
Kvennaflokkur:
1. Andrea Dögg Kjartansdóttir
2. Ásta Margrét Rögnvaldsdóttir
3. Ásdís Elva Kjartansdóttir
85cc flokkur:
1. Haraldur Örn Haraldsson
2. Victor Ingvi Jacobsen 67 Racing
3. Oliver Örn Sverrisson
Standard flokkur:
1. Kári Jónsson
2. Anton Freyr Birgisson
3. Steingrímur Örn Kristjánsson
Opinn flokkur:
1. Þorgeir Ólason 67 Racing
2. Ásgeir Hall
3. Ragnar Ingi Stefánsson
______________________________
Um Helgina, 6-7 mars, var 2 hjólum stolið við Esjuberg, þetta eru 2 stk.
Hondur, crossari og Super Moto. Annað hjólið er:
Honda CRF 450f, árgerð 2008, með Super Moto setup, stórum bremsum, bláum gorm, mjög sérstakt hjól.
Hjólið var á skrúfudekkjum þegar því var stolið.
Hitt hjólið er Honda CRF 250f, árgerð 2007.
Ef þið hafið einhverjar upplýsingar um hvar þessi hjól gætu verið niðurkomin,
þá hafið samband við lögregluna, eða Ármann í síma 698-4323.
Athugið að hjólin eru ótryggð, þannig að ekkert fæst úr tryggingunum og því
mjög mikið atriði að þessi hjól finnist.Einnig var hjálmum stolið. 450 hjólið:
(myndir fengnar að láni frá Unnari Má )

67 racing bolir til sölu
Hægt er að panta með því að senda email á info@67racing.is
Varan er svo send í póstkröfu.
Nafn
Heimilisfang
Póstnr.
Bæjarfélag
Netfang
Litur.
Stærð.
Fjöldi.



Ath. þetta eru litlar stærðir, öruggara að taka einu númeri stærra.
_______________________________________
Ný stjórn hjá KK var kosin á Laugardag.
Kvartmíluklúbbnum stýrir stjórn 7 manna og 2ja varamanna.
Þeir eru:
- Ingólfur Arnarson, formaður
- Guðmundur Þór Jóhannsson, varaformaður
- Friðrik Daníelsson, ritari Fridrikdan(hjá)simnet.is s:693-9115
- Jón Þór Bjarnason, gjaldkeri, nonni(hjá)kvartmila.is, s:899-3819
- Jón Bjarni Jónsson, upplýsingafulltrúi flappinn(hjá)simnet.is, s:847-3217
- Baldur Gíslason, meðstjórnandi
- Rúdólf Jóhannsson, meðstjórnandi ____________________________________________
Tæplega 40 keppendur skráðir í íscrossið. 67 Racing á amk þrjá keppendur í ísnum á morgunn. Þorgeir Ólason keppir í opnum flokki. Jón Kr Jacobsen í vetrardekkjaflokki og Victor Jacobsen í unglingaflokki. Hvetjum alla til að mæta á Leirtjörnina á morgunn Laugardag.
VÍK mun halda aðra keppni í endurocrossi innanhús í Reiðhöllinni 14 febrúar næst komandi. Eins og bæði keppendur og áhorfendur upplifðu síðast, að þá var þetta hörkuspennandi keppni og afar skemmtileg. Reyndi hún meira á keppendur en þeir gerðu ráð fyrir og voru margir hreinlega búnir á því. VÍK mun auglýsa skráningu síðar á vef motocross.is þegar nær dregur og ætti það ekki að fara framhjá neinum. VÍK mun halda þessa keppni í samvinnu við Nitró, eins og síðast, enda tókst keppnin afskaplega vel.
Okkar maður Björvin Sveinn Stefánsson Stóð sig frábærlega
í fyrstamótinu og endaði í 2.sæti

_____________________________
Íscrossið hefst 30. Janúar á Mývatni
1. umferð Íslandsmótsins í Ís-Cross fer fram á Mývatni laugardaginn 30. janúar. Vegna þess hversu mikil óvissa hefur verið með mótsstað vegna óhagstæðs veðurfars hefur verið ákveðið að framlengja skráningu um 24 tíma og stendur hún til miðnættis miðvikudaginn 27. janúar.
Keppnisdagatal 2010

__________
67 Racing look fyrir 2010
Fánlegt í byrjun árs 2010

________________________
Varahlutir á lager

67 Racing Team flytur inn megnið af þeim varahlutum sem
liðið þarf til almenns reksturs.
Liðið á því til á lager helstu nauðsynjavörum fyrir mótorhjól og
getur útvegað orginal og aftermarket varahluti á mjög góðu verði
í öll japönsk hjól. Sjá nánar
___________________________________________
English version in progress

_
Úrslit til Íslandsmeistara í Sandspyrnu
| Sæti: |
Nafn: |
Tæki: |
|
Samtals: |
|
| 1. |
Þorgeir Ólason |
Kawasaki KX 125 |
67 Racing |
304 |
|
| 2. |
Kristján Valdimarsson |
Honda CFR 450 |
|
279 |
|
| 3. |
Hafsteinn Eyland |
Honda CR 500 |
67 Racing |
230 |
|
| 4. |
Brynjar Schiöth |
KTM 450 |
|
132 |
|
| 5. |
Birkir Ingi Símonarson |
KTM 380 |
|
130 |
|
| 6. |
Valdimar G. Valdimarsson |
GasGas 300 |
|
85 |
|
| 7. |
Kristján Hafliðason |
Kawasaki KX 450 |
|
45 |
|
| |
|
|
|
|
|
| |
Hjól 500cc+ |
|
|
|
|
| |
|
|
|
|
|
| Sæti: |
Nafn: |
Tæki: |
|
Samtals: |
|
| 1. |
Björn B. Steinarsson |
Suzuki 1100 |
67 Racing |
322 |
|
| 2. |
Jón Kr. Jacobsen |
Yamaha R1 |
67 Racing |
206 |
|
| 3. |
Svanur H. Steindórsson |
Honda CBR 600 |
|
87 |
|
| |
|
|
|
|



____________________________
Stór Sigur hjá 67 Racing í 1/8 mílu.
Enn einn 67 Racing sigurinn í hús.
Í þetta skipti var það 1/8 míla. Geitungurinn sigraði tvo Íslandsmeistara í
800cc flokki. Lobo varð svo annar.
Í minni flokknum 799cc sigraði Haffman á hinni alræmdu Rottu.
Hér má sjá strákana taka á móti verðlaununum
takið sérstaklega eftir því að Geitungurinn hefur
stækkað eitthvað í sumar. Hann er allavega stærstur af þessum
þrem á verðlaunapalli.
Þess má geta að þeir hafa allir ásamt
X-Ray fengið nýjan samning við 67 Racing Team fyrir
Næsta ár.

___________________________
Nú er komið að sjöttu keppni sumarsins.
Þetta er 1/8 míla, hún fer fram Sunnudaginn 30. ágúst
ATH þetta eru þeir flokkar sem verða keyrðir í þessari keppni
Bílar
Það verður keyrt akureyrarflokkan svokallaða:
Eindrifsflokkar
4 cyl
6 cyl
8 cyl
4X4
Í þessum flokkum verður dekkjabúnaður að vera dot merktur, nema hjá FWD bílum þeir meiga vera á hverju sem er.
GF
OF
Einnig verður boðið upp á að keyra bracket flokk ef næg skráning næst
Hjól
799 cc og minna óbreytt
799 cc og minna breytt
800 cc og stærra óbreytt
800 cc og stærra breytt
Dagskrá:
9:30 – 11:00 Mæting Keppanda
10:00 – 10:45 Æfingarferðir
11:00 Pittur lokar
11:05 Fundur með keppendum
11:20 Tímatökur hefjast
13:20 Tímatökum lýkur
13:20 – 13:45 Hádegishlé
13:45 Keppendur Mættir við sýn tæki
14:00 Keppni Hefst
16:25 Keppni lýkur
16:55 Kærufrestur liðinn
17:00 Verðlaunaafhentng
Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur Akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:
Flappinn@simnet.is
Nafn
Kennitala
Keppnistæki
Bílnúmer
Flokkur
GSM
Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á kvartmíluspjallinu.
Nánari upplýsingar í síma 8473217, Jón Bjarni
SKRÁNINGU LÝKUR Fimmtudagskvöldið 27. Ágúst Á SLAGINU 00:00
þegar skráningu er lokið verður EKKI hægt að skipta um flokk nema að flokkurinn innihaldi aðeins einn keppanda.
Þeir sem eru ekki vissir í hvaða flokk þeir ætla að skrá sig í:
Það er leyfilegt að skrá sig án þess að tilgreina flokk.
Þá getur fólk mætt á æfinguna og ákveðið hvaða flokk það á heima í.
Það fær samt einginn að keyra á þessair æfingu nema að vera búinn að skrá sig og borga keppnisgjöld
Dagskrá keppninar verður birt síðar
Mæting er á milli 9:30 og 11.
Á slaginu 11 verður hliðinu lokað og þeir sem mæta eftir það verða ekki með.
ATH til keppanda.
Þeir sem mæta á keppnisæfinguna þurfa ekki að fylla út skráningarblaðið aftur.
ALLIR KEPPENDUR EIGA AÐ KOMA VIÐ Í FÉLAGSHEIMILINU OG FÁ DAGSKRÁ Á LAUGARDEGINUM ÁÐUR EN ÞEIR FARA NIÐUR Í PITT!!!!!!!!!!!
Til að flýta fyrir skráningu þá er gott ef menn geta komið með þetta skjal útfyllt.
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?action=dlattach;topic=42742.0;attach=44370
Æfing sem er aðeins ætluð keppendum verður haldin Föstudaginn 28. Ágúst
Æfingin byrjar upp úr 19:00
Keppnisgjöld verða að vera greidd fyrir Kl: 00:00 Fimmtudaginn 27. Ágúst
ATH. Þetta er loka frestur á keppnisgjöldum nema eitthvað komi uppá hjá mönnum og þeir geta ómögulega greitt keppnisgjald á réttum tíma.
Enginn fer niðrí pitt fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Einnig ætla ég að biðja sem flesta að reyna að millifæra keppnisgjöldin
Reikningsnúmerið er:
#1101-26-111199
Kennitala:
# 660990-1199
Keppnisgjaldið er 5000kr
KOMA MEÐ KVITTUN ÚR HEIMABANKA
Keppendur undir 18 ára aldri þurfa skriflegt leyfi frá foreldrum eða forráðamönnum
Ef það eru einhverjar spurningar þá er ykkur velkomið að hringja í síma 847-3217, Jón Bjarni
___
Skráning er nú hafin í þriðju umferð Íslandsmeistaramótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram að Hrauni í Ölfusi laugardaginn 5. september 2009 kl. 14:00.-
Skráning fer fram á tölvupósti
ba@ba.is
Það sem þarf að koma fram í skráningu er:
Nafn og kennitala ökumanns
Keppnistæki
Keppnisflokkur
Akstursíþróttafélag
Skráningu lýkur mánudagskvöldið 31. ágúst kl. 23:59.-
Keppnisgjald er krónur 5.000.- og innifalið í því er ÍSÍ gjaldið.
Greiðslu skal leggja inn á 565-26-580 kt. 660280-0149
Keppnisreglur og flokka má finna í valmynd hér vinstra megin undir liðnum "Keppnisreglur"
Fyrir hönd spyrnudeildar B.A.
Halldór Hauksson
__________
Dynodagar í Nitro á morgun 20.08.2009
Opið til 21:00
Dynobekkurinn verður í gangi milli 16:00-21:00 og kostar runnið 3900kr
Á milli 19:00-21:00 verður 30% á ÖLLU Í BÚÐINNI ef þér vantar galla þá er tíminn núna.
Krúserar, klúbbur áhugamanna um klassíska bíla, stendur fyrir sínu árlega Krúserkvöldi á morgun, fimmtudag, frá klukkan 19-21, á planinu fyrir utan stórverslun N1 við Bíldshöfða 9. Meðal fastra liða á hinu árlega krúserkvöldi er sýning á mörgum af flottustu tryllitækjum landsins.
- Bílasýning með fjölda ólíkra klassakerra
- Blúsband heldur uppi stemningunni
- Börnin fá popp
- Alvöru Búlluborgarar frá Hamborgarabúllunni á 500 kall og frí kók með
- 30% afsláttur af öllum vörum í verslun nema vélhjólum
Krúserar, klúbbur áhugamanna um klassíska bíla, stendur fyrir sínu árlega Krúserkvöldi á morgun, fimmtudag, frá k.19-21, á planinu fyrir utan stórverslun N1 við Bíldshöfða 9. Meðal fastra liða á hinu árlega krúserkvöldi er sýning á mörgum af flottustu tryllitækjum landsins. Ýmislegt fleira verður á seyði fyrir bæði börn og fullorðna til viðbótar við króm, leður og blæjur. Blúsband leikur tónlist frá þeim tíma þegar þessar bílgerðir runnu fyrst af færibandinu. Menn klæða sig upp með lakkrísbindi og sólgleraugu. Það verða alvöru Búlluborgarar frá Hamborgarabúllunni, gos á vægu verði og bíópoppkorn frítt fyrir alla. Sérstök kvöldopnun verður í stórverslun N1 í tilefni af Krúserhátíðinni og sérstakur 30% afsláttur veittur af öllum vörum nema vélhjólum þetta eina kvöld. Eftir kl.21 verður svo krúsað í langri bílalest um borgina. Tilboð verður í Dynobekkinn á þjónustuverkstæði okkar að Funahöfða 13 frá kl. 16:00 - 21:00 og verður hægt að láta Dynomæla hjólið sitt fyrir aðeins 3.900 kr.-

________________




__________________
Glæstur sigur 67 Racing í Kvartmílu helgarinnar.
67 Racing Team Sigraði alla sína flokka í kvartmílu helgarinnar 11.07.09
Sjá nánar klikk á mynd.

